GæðaGolf – Mjódd og Hringbraut 

Hjá Gæðagolfi finnur þú Trackman IO golfherma af allra nýjustu og fullkomnustu gerð. Spilað á mörgum af frægustu og fallegustu golfvöllum heims. Hermarnir bjóða bæði byrjendum og reyndum kylfingum upp á einstakt tækifæri til að æfa sig, skerpa á leiknum og njóta skemmtilegra golfhringja við bestu aðstæður, allt árið um kring.

Álfabakka 12 og Hringbraut 124

Við bjóðum einnig upp á fyrsta flokks golfkennslu og kylfumælingar.

Opnunartími:

Alla daga frá kl. 07:00 – 24:00.

Opnunartilboð: 3.500.- kr á klukkustund



Bóka í Golfhermi

Verðskrá golfherma

Tilboð – 3.500.- kr á klukkustund á öllum tímum.

 

Golfkennsla og kylfumælingar

Nökkvi Gunnarsson PGA golkennari sér um kylfumælingar og golfkennslu hjá GæðaGolf.

Verðskrá – Golfkennsla:

30 mínútna einkakennsla 12.000.- kr

60 mínútna einkakennsla 20.000.- kr

30 mínútna parakennsla 14.000.- kr

60 mínútna parakennsla 24.000.- kr

Verðskrá – Kylfumælingar:

Járnasett eða trékylfur allt að 60 mínútur 14.000.- kr

Full mæling allt að 120 mínútur 24.000.-

Tímabókanir á ggolf@ggolf.is

Golfferðir

GæðaGolf í samstarfi við TÍUÞÚSUNDFET bjóða upp á golfferðir og golfskóla á hinu frábæra golfsvæði El Prat í Katalóníu. Allar nánari upplysingar á vefsíðu Tíu þúsund feta, www.10000.is

Trackman og appið

1. Sæktu TrackMan Appið
Forritið er tiltækt fyrir bæði iOS og Android tæki og gerir þér kleift að tengjast golfherminum á auðveldan hátt og nýta háþróaða tækni til að bæta leikinn þinn.

2. Skráðu þig inn eða nýskráðu þig
Notaðu netfang og lykilorð til að skrá þig inn. Ef þú ert nú þegar með reikning geturðu auðveldlega nýtt þér hraðinnskráningu.

3. Tenging við herminn

  • Opnaðu forritið og notaðu QR kóða eða sex stafa PIN sem birtist á skjá hermisins til að tengjast.
  • Eftir tengingu hlaðast prófíll og stillingar sjálfkrafa inn, svo þú getir hafið æfingarnar strax.

4. Notkun á aðgerðum í appinu

  • Golfhringir: Fylgstu með skori þínu, fjölda pútta og lengd hvers höggs. Appið býður upp á ítarlega tölfræði sem sýnir frammistöðu þína á vellinum og gefur þér tækifæri til að bæta leikinn.
  • Æfingasvæði: Fáðu ítarleg gögn um æfingar, svo sem meðalhögglengd og bil á milli kylfufjarlægða (gapping). Þessi greining hjálpar þér að skilja betur hversu langt þú slærð með hverri kylfu.
  • Högggreining: Skoðaðu nánar gögn fyrir hvert högg, þar á meðal högglínu, sveifluslóð, og boltatilfelli. Þessi gögn veita þér skýra sýn á hvað þú getur bætt og hvar styrkleikar þínir liggja.
Gæða golf
Privacy Overview

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að veita þér bestu mögulegu notendaupplifun. Upplýsingar úr vafrakökum eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teyminu okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þú telur áhugaverðastan og gagnlegastan.